(
English below)
Þetta er ekki ár flýtis, heldur ár göngunnar, ráðsmennsku og algers trausts á Guði.
Stoðir ársins: Sálmar 26 og 86.
Ár flæðis, ekki þrýstings.
Orð fyrir árið 2026
Í bæn fyrir þetta ár fékk ég mjög skýrt tvær stoðir úr Sálmum 26 og 86. Þeir tala saman og mynda eina heild:
Sálmur 26 fjallar um göngu okkar – ráðvendni, heilindi og trúfesti í daglegu lífi.
Sálmur 86 fjallar um leiðsögn Guðs – bæn, undirgefni og að leyfa Drottni að stýra skrefunum.
Þetta tengist einnig myndinni í Esekíel 47, þar sem flæði Guðs vex stig af stigi. Flæðið byrjar smátt, í dropatali, þegar við auðmýkjum okkur — við öklana — og eykst aðeins þegar maðurinn gengur í takt við mælingu Guðs. Þetta minnir okkur á að vakning er ekki skyndiátak, heldur heilagt ferli.
Við sjáum fjögur stig flæðisins:
• Öklar – gangan og daglegt líf
• Hné – bæn og undirgefni
• Mjaðmir – frjósemi og ábyrgð
• Fljót – algert traust, þar sem Guð leiðir flæðið
Lykiláminning ársins kemur úr Orðskviðir 19:2:
„Án þekkingar er kapp ekki gott, og sá sem flýtir sér misreiknar sig.“
Þetta er ár þar sem Guð kallar okkur ekki til flýtis, heldur til ráðsmennsku.
Ekki til að hlaupa á undan Guði, heldur ganga með honum.
Ekki til að stjórna flæðinu, heldur treysta leiðsögn hans.
– Algert traust er ekki að sleppa ábyrgð, heldur að sleppa sjálfsstjórn.
Guð mælir flæðið – við svörum með hlýðni.
Þar sem gangan er rétt, þar leiðir Guð áfram.
„Kenn mér veg þinn, Drottinn, svo að ég gangi í sannleika þínum.“
(Sálmur 86:11)
Þetta er ár göngunnar, undirgefninnar og algers trausts á Guði
í ólgusjó og ringulreið heimsins —
ekki ár flýtis, heldur ár flæðis og forsjár Guðs. Yfirnáttúruleg fyrirsjá fyrir sýnina sem Guð gefur.
meira seinna
⸻
A Word for the Year 2026
In prayer for this year, I clearly received two foundational pillars from Psalms 26 and 86. Together, they form one message:
Psalm 26 speaks about how we walk — integrity, faithfulness, and uprightness in daily life.
Psalm 86 speaks about how God leads — through prayer, humility, and allowing the Lord to direct our steps.
This word is also closely connected to the picture in Ezekiel 47, where the river of God grows gradually, stage by stage. The flow begins small — like drops forming as we humble ourselves, at the ankles — and increases only as we walk in step with God’s measurement. This reminds us that revival is not a sudden effort, but a holy process.
We see four stages of the flow:
• Ankles — our walk and daily life
• Knees — prayer and humility
• Waist — fruitfulness and responsibility
• River — complete trust, where God Himself leads the flow
The key reminder for this year comes from Proverbs 19:2:
“Desire without knowledge is not good—how much more will hasty feet miss the way!”
This is a year where God is not calling us to haste, but to stewardship.
Not to run ahead of Him, but to walk with Him.
Not to control the flow, but to trust His leading.
– Complete trust is not abandoning responsibility, but releasing self-control.
God measures the flow — we respond with obedience.
Where the walk is right, God continues to lead.
“Teach me Your way, O Lord, that I may walk in Your truth.”
(Psalm 86:11)
This is a year of walking, humility, and complete trust in God
amid the turbulence and confusion of the world —
not a year of haste, but a year of God’s flow and divine providence. Supernatural provision for the vision.
More to come…
⸻
#Ársorð2026#FarvegurFyrirVakningu#AlgertTraust#Sálmur26#Sálmur86#Esekíel47#Orðskviðir19#WalkingWithGod#Stewardship#TrustGod @highlight #everyonehighlightsfollowers

Pingback: Þegar Guð leiðir skref fyrir skref