EFNISYFIRLIT

Tungutal og útlistun

Rödd Guðs í söfnuðinum

Hér getur þú skoðað uppbyggingu bókarinnar og fengið yfirlit yfir efnið. Efnisyfirlitið veitir innsýn í meginviðfangsefni bókarinnar án þess að birta efni úr köflunum

Um bókina

Tungutal og útlistun – Rödd Guðs í söfnuðinum er biblíuleg kennslubók sem fjallar um gjafir tungutals og útlistunar af jafnvægi, skýrleika og virðingu fyrir orði Guðs og þjónustu annara.

Bókin sameinar ritningarkennslu, hagnýta leiðsögn og reynslu úr þjónustu, ásamt vitnisburðum og hjálpar lesandanum að skilja betur hvernig þessar gjafir geta byggt upp einstaklinga og söfnuð.

Neðar á síðunni getur þú skoðað efnisyfirlit bókarinnar og fengið góða yfirsýn yfir uppbyggingu hennar áður en þú kaupir bókina.

83 blaðsíður – A5 – Prentuð bók
Smelltu til að sjá efnisyfirlit

Umsagnir

  1. Kolbeinn Sigurðsson
  2. Ester Jacobsen
  3. Guðni Hjálmarsson

    Formáli
    Rödd Guðs og ábyrgð okkar

    Kafli 1 – Þegar Heilagur Andi leiðir söfnuðinn
    Ekki vera fáfróð um gjafir Andans
    Kafli 2 – Guð talar enn í dag
    Rödd Guðs í lífi einstaklinga og safnaðarins
    Kafli 3 – Gjöf tungutals og útlistunar
    Eðli, tilgangur og samspil
    Kafli 4 – Farvegur hlýðni og tímasetningar
    Þegar tímasetning Guðs opnar leið fyrir Orðið
    Kafli 5 – Hagnýt leiðsögn
    Að þekkja tímann, rýmið og ábyrgðina

    Viðaukar – Persónuleg reynsla og vitnisburðir
    Viðauki A – Samstarf í anda
    Vitnisburðir – Þegar Guð skiptir boðskapnum á milli
    Viðauki B – Þegar hljóð verður boðskapur
    Samhljómur, forysta og spámannlegt hljóð á samkomu
    Viðauki C – Tungur manna og engla
    Vitnisburðir um yfirnáttúrulegt tungutal
    Viðauki D – Að bíða og hlýða
    Þegar Guð opnar farveg á sínum tíma
    Viðauki E – Rýmið eftir tungutalið
    Að þekkja hvenær á að vera í þögn og hlusta
    Viðauki F – Aðgreining og næmni
    Að greina á milli bænar, lofgjörðar og boðskapar
    Viðauki G – Staðfesting og vitnisburður
    Þegar Guð útlistar sama orðið til fjöldans
    Viðauki H – Að varðveita frið og flæði
    Þegar allt þjónar sama tilgangi
    Viðauki I – Opinberun og samhljómur
    Þegar Guð talar fyrst til þjónanna
    Viðauki J – Röddin sem leiðir til viðbragða
    Þegar Orðið kallar fram svörun
    Viðauki K – Aðgreining raddarinnar
    Þegar Guð talar í mildi og krafti
    Viðauki L – Ábyrgð ráðsmannsins
    Að bera gjöfina með trúfesti
    Viðauki M – Jafnvægið í þjónustunni
    Milli hlýðni og biðar
    Viðauki N – Guð kallaði mig heim
    Kærleikur Guðs í spádómsorði
    Lokaorð
    Að ganga fram á veginn í næmni og traust að leiðarljósi

Sýnishorn úr bókinni

Tilgangur gjafanna

Gjafir Heilags Anda eru gefnar til blessunar og uppbyggingar. Því þarf
að læra hvernig á að nota þær í raunverulegum aðstæðum ­sómasamlega
og með reglu. Svo söfnuðurinn byggist upp. Þær eru ekki aðeins andleg
reynsla, heldur ábyrgð sem ber að rækta með visku, auðmýkt og kærleika.
Það sem fæðist í anda þarf að finna sér rétt rými í lífi safnaðarins, þannig
að uppbygging verði til, en ekki ruglingur eða óöryggi. Þroski felst ekki
aðeins í að vita hvað Guð er að segja, heldur einnig hvenær, hvar og
­ hvernig það á að koma fram.


Tímasetning

Spámannlegt tungutal kemur oft fram þegar samkoman færist á
milli skeiða, í lofgjörð milli laga eða þegar Andi Guðs kallar fram kyrrð
og eftirvæntingu. Stundum áður en prédikun hefst eða eftir prédikun,
sjaldnar kemur það í miðri prédikun, nema Guð vilji staðfesta eða leggja
áherslu á það sem sagt er eða leiða eitthvað annað fram.

Guð er ekki Guð truflunarinnar heldur Guð friðarins. Tímasetningin
er í samhljómi við það sem Heilagur Andi ­­er að gera á samkomunni.
Það er algengt að spádómsorð séu í takt við það sem sagt er. Farvegur
myndast ekki af tilviljun. Hann verður til þegar hjarta lærir að þekkja
­tímasetningu Guðs.


Rýmið

Það skiptir máli hvar og hvernig orðið er fært fram. Tungutal og
útlistun eru ekki ætluð til að fylla rýmið, heldur til að þjóna því. Þegar
gjöfin fær rétt rými ríkir friður og athygli safnaðarins beinist að Guði,
ekki þeim sem talar.
Í mörgum tilvikum er rétt að bera orðið fyrst undir þann sem leiðir
­samkomuna, sérstaklega þegar fólk er að stíga sín fyrstu skref. Þetta er
ekki til að slökkva flæðið, heldur til að vernda það. Þar sem friður, regla
og ábyrgð ríkir, þar þrífst frelsi Andans.


Scroll to Top